Skráning 2012 Fréttir Leikir & úrslit Myndir Flickr


Vodafone Rey Cup
10 ára afmæli fagnað 2002-2012!



Hátíðarár er framundan þegar haldið verður upp á að tíu ár eru liðin frá upphafi Rey Cup nú Vodafone Rey Cup. Auk þátttöku erlendra félagsliða koma reyndir erlendir dómarar að dómgæslu á Rey Cup auk íslenskra kollega þeirra. Fegurð mótssvæðisins í Laugardal og veðursæld hefur löngum verið dásömuð svo og frábær vallar- og gistiaðstaða í Laugardal og nágrenni.

Dagsetning: 25. – 29. júlí 2012.
Staðsetning:
Laugardalur, Vodafone Rey Cup, Engjavegi 7, 105 Reykjavík.

Þátttökugjald óbreytt 3ja árið í röð í tilefni afmælisárs



Þátttökugjald:
Kostnaður á hvern leikmann vegna þátttöku á Rey Cup.



1. Þátttaka í Rey Cup kr. 11.000,-

Gjaldið felur í sér aðgang að öllum dagskrárliðum.
Á lokahóf/stórdansleik/BBQ/sundlaugapartý. Að auki: Frír aðgangur að Laugardalslaug og í Fjölskyldu- og húsdýragarði. Þátttakendur fá einnig Rey Cup bol.


2. Þátttaka með fæði kr. 15.000,-

Að viðbættu því sem gjald 1 innifelur er greitt fyrir morgunmat 4 daga og tvær góðar máltíðir, að auki er BBQ stórgrillveislan.


3. Þátttaka með fæði og gistingu kr. 18.500,-

Að viðbættu því sem gjald 2 innifelur er greitt fyrir gistingu í skólum í 4 nætur.



Mótsgjald:
Mótsgjald kr. 10.000,-

Mótsgjald er sérstök greiðsla af hverju keppnisliði. Fjöldi skráðra leikmanna í hverju keppnisliði getur mest verið 16 leikmenn.


Staðfestingargreiðsla:
Staðfestingargreiðsla er ætlað að vera trygging/staðfesting á þátttöku viðkomandi keppnisliðs. Hvert keppnislið þarf að inna greiðsluna af hendi til að þátttaka teljist fullgild og skráningartæk. Staðfestingargreiðslan reiknast sem innborgun á þátttöku- og mótsgjaldi en er ekki viðbótarkostnaður. Greiðslan er óafturkræf ef viðkomandi keppnislið fellur frá þátttöku. Staðfestingargreiðsla er kr. 30.000,-


„Fótbolti og fjör!“


„Fótbolti og fjör!“ er hugmyndafræði Vodafone Rey Cup, fótbolti á daginn og fjölbreytt skemmtun á hverju kvöldi, sundlaugarpartý, skemmtibolti, grillpartý í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Laugardal, kvöldmatur á Grand Hótel og stórdansleikur á Hótel Íslandi, Broadway allt innifalið í þátttökugjaldinu. Að auki alls konar tilboð í gangi, eins og í keilu, bíó og lazertag.


Stórdansleikur á Broadway með þekktum tónlistarmönnum ungu kynslóðarinnar!
Afmælisfagnaður á laugardagskvöldinu fyrir þá fullorðnu á Hilton Reykjavík Nordica.
Samkomutjöld félagsliða á tjaldsvæði Farfuglaheimilisins í Laugardal án endurgjalds.



Öllum liðum tryggðir a.m.k. 6 leikir!

Leikinn er 11 manna bolti en einnig boðið upp á 7 manna bolta sé næg þátttaka. Leiktími er 2x25 mín.


Aldurhópar 2012:

Aldurhópar 3. og 4. flokks karla og kvenna (yngra og eldra ár)
U14 leikmenn fæddir 1998-1999
U16 leikmenn fæddir 1996-1997



Dagskrá

Dagskrá Vodafone Rey Cup 2012 má skoða hér.


Skráning þátttöku:

Skrá lið til þátttöku


Hafðu samband

Hægt er að senda tölvupóst á netfangið reycup@reycup.is eða hringja í eftirfarandi símanúmer: 616 0111 • 580 5902 • 616 0112.




FRÉTTIR
Erlend lið skráð til leiks

Drev1919 frá Haugasundi í Noregi er skráð til leiks í 3. flokki karla.  Í 3. flokki kvenna er HPS frá Finnlandi skráð til leiks í 3. flokki kvenna.  Er þitt lið ekki örugglega skráð til leiks?


Lesa
Afmælismót júlí 2012

Undirbúningur fyrir afmælismótið nú í sumar er kominn á fullt.  Liðin eru byrjuð að skrá sig til leiks, bæði innlend og erlend. Fótbolti á daginn og fjör á kvöldin. Einkunnarorð mótsins eru fótbolti og fjör (football and fun) og við stefnum svo sannarlega að því. Við minnum liðin á að skrá sig á mótið, fyrr en seinna. Hægt er að senda fyrirspurnir hér í gegnum síðuna og er þeim svarað sem fyrst. 


Lesa
Heildarúrslit Vodafone Rey Cup 2011

Vodafone ReyCup þakkar öllum þátttakendum fyrir frábært mót. Mótið í ár var það fjölmennasta sem haldið hefur verið á 10 ára ferli keppninnar. Um 1.700 þátttakendur mættu í Laugardalinn og „nærsveitir“, 120 lið sem kepptu í 12 flokkum. Á lokahátíðinni voru verðlaun veitt fyrir þrjú eftstu sætin í hverjum flokki. Auk þess sem háttvísisverðlaun og verðlaun fyrir prúðasta liðið utan vallar sem innan voru veitt. Smellið á lesa til að skoða skiptingu verðlaun.
Hér má sjá myndband af Fótbolta.net um mótið.


Lesa
KR meistari í 3. fl. karla, 2. árið í röð

KR-ingar endurtóku leikinn frá því í fyrra og fögnuðu sigri í 3. flokki karla A-liða. Eftir 0-0 jafntefli í venjulegum leiktíma þar sem "liðin stefndu ákveðið í vítaspyrnukeppni" eins og einum áhorfenda varð að orði tók við vítaspyrnukeppni. Keflvíkingar misnotuðu tvær fyrstu spyrnur sínar, slá og varið, á meðan að KR-ingar skoruðu úr sínum.


Lesa
Blikastúlkur sigursælar á Rey Cup

Blikastúlkur fögnuðu sigri í úrslitum 3. flokks kvenna hjá Aliðum í dag eftir vítaspyrnukeppni í leik gegn Þór frá Akureyri. Segja má að sagan frá því úrslitum 4. flokks kvenna hafi endurtekið sig. Blikar unnu lið Þórs frá Akureyri. Til hamingju Blikar.


Lesa




LEIKIR & ÚRSLIT
Allir leikir



Nýjustu úrslit
Dags.TímiHeimalið ÚtiliðLeikvöllur
24.07.2011 14:00
Höttur   
1 - 0 Þór TBR - C4
24.07.2011 14:00
Þór   
2 - 1 ÍR Sl.br.7 m - C3
24.07.2011 13:00
ÍBV   
1 - 4 ÍA Víkingsvöllur
24.07.2011 13:00
Fjölnir   
0 - 3 Víkingur S.braut - C3
24.07.2011 13:00
ÍBV   
1 - 4 Keflavík TBR - C4
MYNDBÖND



MYNDIR
Úr albúminu:
Föstudagsmyndir - strákar




Skoða öll albúm


Vodafone Rey Cup | Laugardalur Engjavegur 7 | Félagshús Þróttar | 104 Reykjavik | Netfang: reycup@reycup.is | Veffang: www.reycup.is
Sími: 580 5907 | Gsm: 616 0111 | Fax: 580 5901


REY CUP VEFURINN BYGGIR Á D10 VEFBÚNAÐI