Nú fer að líða að ReyCup 2024!
Greiða þarf mótsgjöld fyrir 1.júní 2024. Ef lið hefur ekki greitt, þá missir það lið sætið sitt og lið af biðlista er tekið inn.
Mikilvægar upplýsingar er að finna hér:
Skráning:
-Hægt er að velja mismunandi pakka fyrir eitt lið, setja þarf athugasemd með greiðslu hvað er verið að greiða fyrir ef leikmenn taka mismunandi pakka.
-Ekki er hægt að breyta skráningu eða fjölda liða. Ef þið viljið bæta við liði þá þarf að skrá liðið á biðlista.
-Það er ekki hægt að millifæra, aðeins greiða í gegnum heimasíðuna https://reycup.is/prices/
-Ekki er hægt að skrá lið á mótið, aðeins á biðlista. Lið á biðlista verða tilkynnt um hvort þau nái sæti á mótinu í lok Júní.
-Borga þarf lið sem heild.
-Ef bolapöntun er ekki skilað fyrir 1. júlí þá fá lið mismunandi stærðir (hægt að skipta á meðan mótinu stendur).
-Hægt er að bæta við 1-5 leikmönnum allt að viku fyrir mót. Setja í athugasemd hvaða lið er verið að bæta við.
-Ef leikmenn detta út fyrir mót fást mótsgjöld endurgreidd (aðeins ef ástæða skilar sér á reycup@reycup.is fyrir 24. júlí).
Biðlisti: https://reycup.is/registration/skraning/
Styrkleikaröðun:
-Farið er eftir skráningu liða, Íslandsmótum og öðrum svipuðum mótum.
Leikjaplan, dagskrá og gistiplan:
-Leikjaplan verður birt á miðlum ReyCup í lok júní eða mánuði fyrir mót.
-Niðurröðun í skóla er birt í byrjun júlí (séróskir þarf að senda á reycup@reycup.is).
-Dagskrá er birt í júní.
Erlend lið og þáttaka:
-Alls eru 140 lið að taka þátt í sumar.
-Erlend lið eru tilkynnt á samfélagsmiðlum ReyCup (TikTok, Instagram og Facebook).
Mælum með að fylgjast vel með á okkar samfélagsmiðlum fram að móti!