Í ár eru 123 lið skráð til keppni í 3. og 4. flokki, karla og kvenna. Liðin koma víðsvegar að, bæði úr Reykjavík og af landsbyggðinni, en að þessu sinni er ekkert erlend lið á mótinu vegna COVID-19.
Það er meiri áhugi á mótinu frá innlendum liðum en verið hefur, um 25 fleiri lið taka þátt en undanfarin ár. Til að get tekið við öllum þessum liðum byrjaði mótið fyrr en verið hefur, og fóru því fyrstu leikirnir fram í gær, miðvikudag.
COVID-19 setur svip á dagskrána, t.d. var ákveðið að sleppa setningarathöfninni sem og verðlaunaafhendingunni.
Gangi ykkur öllum sem best á mótinu, kæru þátttakendur, og góða skemmtun.
– Baldur Haraldsson, formaður stjórnar Capelli Sport Rey Cup.